Ólafur: Hafði frjálsar hendur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. nóvember 2007 12:29 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari. Mynd/E. Stefán
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari segir að hann hafi haft algjörlega frjálsar hendur þegar hann réði sér aðstoðarmann. Pétur Pétursson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Ólafs en hann er þjálfari 2. flokks Breiðabliks og verður það áfram. Sögusagnir hafa verið um að KSÍ hafi tekið fyrir hendurnar á Ólafi með því að ráða ekki starfandi þjálfara úr Landsbankadeildinni honum til aðstoðar en Leifur Garðarsson hafði verið orðaður við stöðuna. Hann er þjálfari Fylkis. Ólafur segir þetta algera þvælu enda hafi hann haft frjálsar hendur um hvern hann réði sem aðstoðarmann sinn. „Ég fékk þau skilaboð frá KSÍ að þessi mál væru algerlega undir mér komin,“ sagði hann. „Ég tel það einfaldlega ekki sniðugt að vera með starfandi þjálfara úr efstu deild sem aðstoðarmann minn. Með því væri áhættan á hagsmunaárekstrum mikil. Frá minni hálfu kom þetta ekki til greina og þess vegna fór ég aðra leið.“ Ólafur segir að hann hafi ekki rætt við fleiri en Pétur vegna starfsins. „Pétur hefur mikla reynslu, bæði sem þjálfari og fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður. Það er reynsla sem ég bý ekki að og þekkir hann þennan heim nokkuð vel. Þar að auki höfum við rætt saman undanfarið og höfum við svipaðar skoðanir á fótbolta.“ Hann segir að hann hafi einnig viljað ráða mann sem væri ekki hræddur við að segja sínar skoðanir umbúðalaust. „Pétur hefur sínar skoðanir og það er alveg ljóst að betur sjá augu en auga.“
Íslenski boltinn Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti Segja Ronaldo hafa misst af leik til að sleppa við svipuhögg Fótbolti Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Enski boltinn Gæti fengið bann sem gildir um allan heim Fótbolti Hafnarfjörður keypti Skessuna fyrir 1.190 milljónir Fótbolti „Eins manns dauði er annars brauð“ Handbolti Ofurtölvan setur Liverpool á toppinn og Arsenal ofar Real Madrid Fótbolti Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Fleiri fréttir Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Sjá meira