Körfubolti

Ekkert varð úr endurkomu Houston

NordicPhotos/GettyImages

Allan Houston mun ekki fullkomna endurkomu sína í NBA deildina með liði New York Knicks eins og til stóð. Houston æfði með liðinu í nokkra daga en tók ákvörðun fyrir þjálfara sinn og dró sig í hlé.

Houston skrifaði undir skammtímasamning við New York fyrir nokkru, en mætti ekki í æfingabúðir liðsins fyrr en 10 dögum eftir að þær byrjuðu. Hann bar við "slæmum tímasetningum" þegar hann var spurður út í brotthvarf sitt.

New York hafði ekki pláss fyrir Houston í hóp sínum þar sem fyrir eru 15 leikmenn og því má segja að hann hafi sparað þjálfaranum Isiah Thomas kinnroða með því að hætta sjálfur, en ólíklegt verður að teljast að Houston hefði komist í liðið.

Houston átti við erfið meiðsli að stríða síðustu árin sín í NBA deildinni og hafði ekki spilað neitt af ráði í nokkur ár þegar hann ákvað að taka skóna fram að nýju á dögunum.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×