Erlent

Vill að Bandaríkjamenn berji á kúrdum

Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, krefst þess að Bandaríkjamenn grípi þegar til aðgerða gegn kúrdískum skæruliðum í norðurhluta Íraks.

Kúrdar hafa fellt vel á annan tug tyrkneskra hermanna í áhlaupum yfir landamæri að Tyrklandi síðustu vikurnar. Tyrkneska þingið veiti í fyrradag her landsins heimild til gagnsóknar inn í Írak.

Ummæli Erdogans frá í morgun þykja benda til þess að Tyrkir vilji komast hjá innrás. Forsætisráðherrann segist ætla að ræða ástandið á fundi með Bush Bandaríkjaforseta í Washington í byrjun næsta mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×