Erlent

Svartbirnir komust ekki í hengirúm

Guðjón Helgason skrifar

Tveir ungir svartbirnir áttu í erfiðleikum með að koma sér vel fyrir í hengirúmi í Highland Lakes í New Jersey í Bandaríkjunum í gær. Birnirnir börðust um pláss og þegar eigandi hengirúmsins varð þess var greip hann myndbandstökuvélina sína og festi aðfarirnar á filmu.

Skömmu síðar kom bjarnamamma og ákvað að sýna afkvæmum sínum hvernig ætti að fara að. Ekki gekk henni þó betur. Að lokum gafst eigandi hengirúmsins upp á að hafa þessa óboðnu gesti í garðinu sínum og fældi þá á brott með óhljóðum og öskrum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×