Sport

Colin McRae lést í þyrluslysi

Colin McRae
Colin McRae NordicPhotos/GettyImages

Fyrrum heimsmeistarinn í rallakstri, Skotinn Colin McRae, er talinn hafa látist ásamt þremur öðrum mönnum í þyrluslysi skammt frá heimili hans í Skotlandi í gær. Enn hafa ekki verið borin kennsl á lík hinna látnu en vitni hafa staðfest að McRae flaug þyrlunni.

McRae varð heimsmeistari í rallakstri árið 1995 og var einstaklega vel liðinn meðal samferðamanna sinna í íþróttinni. Hann var sonur Jim McRae sem sjálfur varð fimm sinnum breskur meistari í rallakstri. McRae varð árið 1995 fyrsti breski ökuþórinn til að verða heimsmeistari í ralli og jafnframt sá yngsti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×