Erlent

Simpson yfirheyrður vegna ráns

Óli Tynes skrifar
O.J. Simpson
O.J. Simpson

O. J.  Simpson hefur verið yfirheyrður vegna ráns í spilavíti í Las Vegas í gær. Lögreglan hefur staðfest að Simpson hafi verið yfirheyrður, en hann hafi ekki verið handtekinn. Fregnir af þessu eru enn mjög af skornum skammti. Ekkert hefur verið gefið upp um ránsfeng eða annað sem málið snertir.

Á morgun kemur út bókin "Ef ég hefði gert það," sem Simpson skrifaði. Þar fjallar hann um hvernig hann hefði staðið að því að myrða Nicole Brown fyrrverandi eiginkonu sína og nýjan kærasta hennar Ron Goldman.....ef hann hefði gert það.

Bókin olli miklu fjaðrafoki og Simpson var sviptur öllum hugsanlegum tekjum af henni, með dómi. Það er fjölskylda sem nú gefur út bókina og nýtur tekna af henni, ef einhverjar verða. Simpson segir að sér sé slétt saman, hann hafi fengið sína borgun fyrirfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×