Sport

Einvígi Gay og Powell verður að bíða

Gay og Powell eru fljótustu menn jarðar
Gay og Powell eru fljótustu menn jarðar NordicPhotos/GettyImages
Einvígi þeirra Tyson Gay og Asafa Powell á gullmótinu í Brussel á föstudaginn hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu, en nú er ljóst að þessir fljótustu menn jarðar mætast ekki strax á hlaupabrautinni. Gay, sem vann til þriggja gullverðlauna á HM á dögunum, hefur ákveðið að taka sér frí eftir álagið á HM. Það verður því eitthvað minni samkeppni fyrir heimsmetshafann Powell í 100 metra hlaupinu á föstudaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×