Sport

Frábær byrjun hjá meisturunum

Payton Manning fór fyrir leiftursókn Colts í síðari hálfleiknum
Payton Manning fór fyrir leiftursókn Colts í síðari hálfleiknum NordicPhotos/GettyImages

NFL-meistarar Indianapolis Colts hófu titilvörnina með tilþrifum í nótt þegar liðið burstaði New Orleans Saints á heimavelli 41-10 í leik tveggja af bestu sóknarliðum deildarinnar. Colts voru vallarmarki undir í miðjum öðrum leikhluta, en það var varnarleikurinn sem kveikti í liðinu og leikstjórnandinn Payton Manning sá um að klára leikinn í síðari hálfleiknum.

Sjónvarpsstöðin Sýn mun gera NFL-deildinni góð skil í vetur líkt og áður og fyrsta beina útsendingin verður á sunnudaginn klukkan 22 þar sem San Diego Chargers taka á móti Chicago Bears. Síðarnefnda liðið lék til úrslita um Ofurskálina á síðustu leiktíð þar sem það tapaði einmitt gegn Indianapolis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×