Sport

Nadal féll úr keppni á opna bandaríska

AFP

Spænski tenniskappinn Rafael Nadal féll úr keppni á opna bandaríska meistaramótinu í tennis í nótt þegar hann tapaði fyrir sprækum landa sínum David Ferrer 7-6, 4-6, 6-7 og 2-6. Nadal virtist vera meiddur í leiknum og náði sér aldrei á strik. Ferrer mætir Juan Ignacio Chela frá Argentínu í fjórðungsúrslitum.

Í kvennaflokki vann stigahæsta tenniskona heims, Justin Henin, góðan sigur á heimamanninum Serenu Williams 7-6 (7-3) og 6-1 og tryggði sér sæti í undanúrslitum þar sem hún mætir Venus Williams eða Jelenu Jankovic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×