Erlent

Á skilið að deyja fyrir að eyðileggja orðstír Tælands

Óli Tynes skrifar
Frá Pattaya ströndinni.
Frá Pattaya ströndinni.

Tælenskur maður hefur verið dæmdur til dauða fyrir að myrða tvær rússneskar konur sem sátu á Pattaya ströndinni og fylgdust með sólarupprásinni. Morðin voru framin í febrúar síðastliðnum. Ekki hefur verið gefin ástæða fyrir ódæðinu, ef hún var þá einhver. Ofursti í Tælensku lögreglunni sagði að morðinginn ætti dauðadóminn skilið fyrir að hafa eyðilagt orðstír landsins.

Morðinginn var látinn laus gegn tryggingu í janúar síðastliðnum, fyrir að hafa rænt ferðamanna frá Suður-Kóreu. Hann var að bíða dóms fyrir það brot þegar hann myrti rússnesku konurnar. Borin voru kennsl á hann eftir myndum úr eftirlitsmyndavél.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×