Erlent

Björk ein af sex mikilvægustu konum skemmtanaiðnaðarins

Óli Tynes skrifar
Björk Guðmundsdóttir.
Björk Guðmundsdóttir.

Tímaritið Variety er eitt af stærstu og áhrifamestu tímaritum í skemmtanaiðnaðinum. Það fjallar ekki síst um þann iðnað út frá viðskiptasjónarmiðum. Variety hefur nú valið Björk Guðmundsdóttur sem eina af sex mikilvægustu konunum í þessum bransa. Og það eru engar smástelpur við hliðina á henni.

Þar má finna bresku leikkonuna Helen Mirren. Hún hefur alltaf þótt frábær leikkona en undanfarin misseri hefur hún sópað til sín verðlaunum og stendur nú á hátindi frægðar sinnar, sextíu og tveggja ára gömul.

Breski rithöfundurinn J.K. Rowling hefur ekki aðeins sópað til sín verðlaunum og vinsældum heldur einnig peningum í þeim mæli að hún er líklega orðin ríkari en Elísabet drottning.

Variety telur Barböru Broccoli einn mikilvægasta kvikmyndaframleiðanda í heimi. Hún erfði að vísu James Bond gullnámuna eftir föður sinn, Chubby Broccoli, en þykir hafa staðið sig stórkostlega við að færa 007 til nútímans með nýjustu myndinni sem sló rækilega í gegn.

Salma Hayek segir að það hafi verið hlegið að sér þegar hún kom til Hollywood. Fólk hafi sagt við hana að hún væri Mexíkói og yrði aldrei leikari í Bandaríkjunum. Variety segir að ekki einungis hafi Salma verið tilnefnd til óskarsverðlauna, hún hafi einnig látið til sín taka í framleiðslu. Meðal annars framleiðir hún hina vinsælu þætti Ugly Betty.

Angelina Jolie er tilnefnd meðal annars vegna þess að hún hefur verið natin við að vekja athygli á átakasvæðum í heiminum. Hún er líka einn af velvildarsendiherrum Sameinuðu þjóðanna.

Danski leikstjórinn Susanne Bier er svo í Variety talin einn af fjórum mikilvægustu leikstjórum heims. Hún sló í gegn með myndinni Sá einasti eini, árið 1999. Síðan hefur hún sent frá sér myndir eins og Bræður og Eftir brúðkaupið.

 

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×