Erlent

Kannt þú tölvunörda brandara ?

Danir eru að velja sína bestu tölvunörda brandara. Hér er einn, úr blaðinu Computerworld.

Tveir tölvunördar sátu saman á bjórkrá, að vinnu lokinni.

"Veistu, í gærkvöldi hitti ég rosalega flotta blondínu á bar á Strikinu."

"Og hvað gerðir þú ?"

"Nú ég bauð henni heim. Við fengum okkur nokkra drykki og komumst í stuð. Svo allt í einu bað hún mig um að klæða sig úr öllum fötunum."

"Þú lýgur þessu."

"Nei, þetta er sagsatt. Svo ég klæddi hana úr öllum fötunum og skellti henni á skrifborðið við hliðina á nýju fartölvunni minni."

"Hvað segirðu. Áttu nýja fartölvu ?"

Ef þið kunnið einhverja góða íslenska tölvunördabrandara, þá hengið þá aftan við þessa frétt. En bara siðsama brandara takk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×