Erlent

Ræningjar í djúpum

Óli Tynes skrifar

Frú Chen sem býr í borginni Laoheku í Kína var að koma frá því að taka út peninga í bankanum sínum þegar tveir menn á skellinöðru renndu upp að henni. Þeir rifu af henni böggulinn sem hún hélt á undir hendinni.

Svo gáfu þeir í botn og hurfu. Þeir tóku með sér böggulinn sem frú Chen ætlaði að fleygja í næstu ruslatunnu, eftir að hún hafði þrifið upp eftir hundinn sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×