Erlent

Taugatitringur á mörkuðum

Guðjón Helgason skrifar

Hlutabréfamarkaðir í Asíu og Evrópu hafa hrunið frá því þeir voru opnaðir í morgun. Áframhaldandi óvissu vegna samdráttar á bandarískum fasteignamarkaði er þar um að kenna. Krónan hefur fallið um 12% á einum mánuði og veiktist um 2% í morgun. Úrvalsvísitalan lækkaði þá um rúm 4%.

Mikil taugaveiklun hefur einkennt viðskipti á mörkuðum í Asíu og Evrópu í morgun. Enn er talið óvíst hversu mikil áhrif samdráttur vegna óhagstæðra fasteignalána í Bandaríkjunum verða.

Dow Jones-vísitalan bandaríska fór niður 13 þúsund stig þegar mörkuðum þar í landi var lokað í gær.

Úrvalsvísitalan lækkaði strax um 4,22% þegar opnað var fyrir viðskipti í Kauphöll OMX á Íslandi í morgun. Krónan veiktist um rúm 2% í morgun og hefur gengi hennar lækkað um 12% á einum mánuði.

Hræðslu fjárfesta við hávaxtamynt vegna vandræða á bandarískum húsnæðislánamrakaði er einna helst kennt um. Tyrkneska líran, ástralski dalurinn og sá nýsjálenski eru í svipaðri stöðu og krónan, samkvæmt frétt frá greiningu Glitnis.

Í morgun hefur verð á bréfum í helstu félögum á íslenskum markaði lækkað. Verð á bréfum í Exista hefur lækkað um rúm 8%, gengi bréfa í FL Group féll um rúm 6% og verð á hlut í Straumi-Burðarás fór niður um rúm 5%.

FTSE vístalan í Lundúnum lækkaði um tæp 3% þegar opnað var fyrir viðskipti þar í borg í morgun og hefur hún lækkað um rúm 10% á rúmum mánuði. Hlutabréfavísitala í Suður-Kóreu lækkaði um 6,5%, og voru viðskipti þar stöðvuð um tíma. Þá lækkaði Nikkei vísitalan í Japan um 2,7%, og Hang Sen vísitalan í Hong Kong um 4%.

Sérfræðingar á alþjóðamörkuðum segja það gera öllum erfitt fyrir að ekki sé hægt að meta umfang vandans. Fjölmargir fjárfestingasjóðir séu í vanda vegna vanskila á lánum til húsnæðiskaupa handa fólki með slæmt greiðslumat. Seðlabankar víða um heim halda á meðan áfram að dæla peningum inn í kerfið í von um að tryggja mýkri lendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×