Erlent

Kåtar konur í Kaupmannahöfn

Óli Tynes skrifar
Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn.
Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn.

Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn fær engan frið eftir að danska blaðið BT skýrði frá því að þar væri verið að prófa pillur sem ykju kynhvöt kvenna. Þetta er tilraunaverkefni sem fjöldi kvenna tekur þátt í. Eftir að BT birti frétt sína hringdu konur í bunkum í sjúkrahúsið og vildu fá að taka þátt í verkefninu.

Samkvæmt frétt BT á pillan bæði að geta aukið kynhvöt kvenna og jafnvel vakið hana að nýju ef hún hefur horfið af einhverjum ástæðum. BT segir að konurnar sem hringdu í sjúkrahúsið séu á öllum aldri. Margar þeirra hafi sótt mjög fast að komast í þetta tilraunaverkefni og ekki viljað sætta sig við þau svör að tilraunahópurinn sé þegar fullmannaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×