Fótbolti

Nicolau Casaus látinn

Aron Örn Þórarinsson skrifar

Nicolau Casaus, fyrrverandi varaforseti Barcelona er látinn, 94 ára að aldri. Í virðingarskyni fyrir Casaus verður öllum fánum liðsins flaggað í hálfa stöng í dag. Minningarathöfn þessa sterka persónuleika verður haldin á hádegi á morgun við Tanatorio de Les Corts í Barcelona.

„Við höfum misst mann sem var gæddur miklum persónutöfrum sem var tengdur klúbbnum á mikilvægan hátt. Casaus þráði mjög að taka Barcelona um allan heim. Hann var frábær sendiboði fyrir klúbbinn vegna persónuleika hans," sagði núverandi varaforseti klúbbsins, Albert Vicens.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×