Sport

Dario Franchitti slapp ómeiddur eftir að bíll hans hófst á loft

Ökuþórinn Dario Franchitti slapp ótrúlega vel þegar bíll hans bókstaflega tókst á loft í kappaksturskeppni í Michigan um helgina. Franchitti leiðir Indycar keppnina í Bandaríkjunum en íþróttin nýtur mikilla vinsælda. Franchitti var á 350 kílómetra hraða þegar hann lenti í óhappinu. Það er kraftaverki líkast að Franchitti steig úr bílnum nánast án meiðsla.

Þrátt fyrir að franchitti hafi misst af sigrinum í þessum kappakstri heldur hann þó ennþá öruggri forystu í Indycar kappakstrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×