Erlent

Hóta að myrða gíslana

Guðjón Helgason skrifar

Uppreisnarmenn Talíbana hóta því að myrða 21 Suður-Kóreumann sem þeir hafa í gíslingu ef Bush Bandaríkjaforseti og Karzai, forseti Afganistans, fyrirskipi ekki að fangelsaðir Talíbanar fái frelsi. Forsetarnir funda nú í Camp David í Bandaríkjunum um ástandið í Afganistan.

Uppreisnarmennirnir, sem þegar hafa myrt tvo gísla, segja blóð á höndum leiðtoganna gangi þeir ekki að kröfum um að fangarnir fái tafarlaust frelsi. Viðræður mannræningjanna og fulltrúa frá Suður-Kóreu um lausn gíslanna hafa siglt í strand.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×