Það ætti að kalla þetta nauðgunarströndina Óli Tynes skrifar 3. ágúst 2007 16:40 Sunny Beach í Búlgaríu.
Enn einni sænskri stúlku hefur verið nauðgað á Sunny Beach í Búlgaríu. Barsmíðar, rán, nauðganir og jafnvel morð eru nánast daglegt brauð á þessari strönd, sem er mikið sótt af ungum Norrænum ferðamönnum. Illvirkjarnir nást aldrei. Norsk ferðaskrifstofa leyfir þeim sem vilja að breyta um áfangastað sér að kostnaðarlausu. Sænska stúlkan, sem er tvítug, var að taka leigubíl heim frá diskóteki seint um nótt. Bílstjórinn ók inn í hliðargötu og réðist á hana í aftursætinu. Hann barði hana hrottalega, nauðgaði henni og henti henni svo út úr bílnum og ók á brott. Hún er ekki ein um þessa meðferð. Á sunny Beach var til dæmis fjórum dönskum stúlkum nauðgað á tíu daga tímabili. Norðmaður var myrtur og fjölmörgum Norðurlandabúum hefur verið misþyrmt og þeir rændir. Þegar 17 ára gamall Svíi vildi ekki kaupa kynlíf af vændiskonu komu dólgar hennar til sögunnar og misþyrmdu honum svo illa að hann var rúmliggjandi í marga daga. Búlgarska lögreglan virðist ekki taka þetta nærri sér. Fórnarlömb nauðgana hafa orðið fyrir því að lögreglumenn sem voru að taka af þeim skýrslu skríktu og flissuðu meðan þeir fengu lýsingar á því sem gerðist. "Það ætti að kalla þetta nauðgunarströndina en ekki sólarströndina," segir norsk stúlka sem var nauðgað á Sunny Beach.
Erlent Mest lesið Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök Erlent Ofbýður hvað Reykjavík er ljót Innlent Valdi dauða með aftökusveit Erlent „Stjórnmálamenn í Lazy Boy bíði þess að skattgreiðendur sendi þeim peninga“ Innlent Segir Selenskí á leið til Washington Erlent Myndband af ránstilrauninni: Ýtti ræningja með byssu burt og ýtti á neyðarhnappinn Innlent Drónaframleiðsla, sprengjuleit og innviðauppbygging meðal þess sem Ísland styrkir Innlent Husky réðst á hreindýr, sem þurfti að aflífa Innlent Slökkviliðsmenn felldu samninginn Innlent Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn haldi skólakerfinu í gíslingu Innlent Fleiri fréttir Staða Sinaloa slæm eftir blóðug átök Valdi dauða með aftökusveit Segir Selenskí á leið til Washington Höktir í stuðningi til Úkraínu hjá Sameinuðu þjóðunum Franskur skurðlæknir játar svívirðileg brot á börnum Sakaður um að þiggja mútur fyrir að tala máli Rússa á Evrópuþinginu Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Sjá meira