Sport

Astana rekur Vinokourov

Aron Örn Þórarinsson skrifar
Vinokourov hjólar ekki aftur fyrir hönd Astana liðsins.
Vinokourov hjólar ekki aftur fyrir hönd Astana liðsins. NordicPhotos/GettyImages

Kasakski hjólreiðakappinn, Alexander Vinokourov, hefur verið rekinn endanlega úr Astana hjólreiðaliðinu. Vinokourov var fyrirliði liðsins á Tour de France, en var vísað úr keppni eftir að ólögleg lyf fundist í blóði hans þann 21. júlí síðastliðinn.

Í yfirlýsingu frá Astana kom fram að B-sýni Vinokourov hafi einnig reynst jákvætt og því hafi það verið ákvörðun liðsins að reka Vinokourov umsvifalaust úr liðinu. Astana dró sig úr Tour de France eftir að í ljós kom að Vinokourov hafi neyt ólöglegra lyfja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×