Erlent

Sjónvarpsþyrlur rákust saman í Phoenix

MYND/AP

Tvær sjónvarpsþyrlur rákust saman er þær voru að mynda bílaeltingarleik lögreglu við bílstjóra vörubíls í Phoenix í dag. Flugmaður og myndatökumaður voru í hvorri vél fyrir sig og létust allir.

Við áreksturinn kviknaði í þyrlunum og hröpuðu þær til jarðar. Engin slys urðu á fólki á jörðu niðri. Þyrlurnar voru frá sjónvarpsstöðvunum KVOA News 4 og KTVK-TV Channel 3. Útsending frá annarri þyrlunni var á KTVK þar til sambandið rofnaði og allt varð svart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×