Erlent

Ítölsk stjórnvöld fordæma ákvörðun FIA

Stjórnvöld á Ítalíu fordæmdu í dag ákvörðun FIA að refsa ekki McLaren liðinu þrátt fyrir að það hafi haft undir höndum leynilegar upplýsingar um vélbúnað Ferrari keppnisbílana. FIA, Aþjóðasamband bifreiða, sagði að þó svo að McLaren hafi haft gögnin undir höndum sé ekki hægt að sýna fram á að liðið hafi hagnast af því.

Engu að síður sagði það að ef ný sönnunargögn, sem bentu til þess að liðið hefði hagnast á upplýsingunum frá Ferrari, þá yrði því bannað að keppa á þessu ári og því næsta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×