Sport

Alexander Vinokourov féll á lyfjaprófi

NordicPhotos/GettyImages

Hjólreiðakappinn Alexander Vinokourov frá Kasakstan féll á lyfjaprófi eftir að hafa sigrað dagleið laugardagsins á Tour de France. Astana, lið Vinokourov, hefur dregið sig úr keppni í kjölfarið. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir, en liðið staðfesti við AFP fréttastofuna að Vinokourov hafi fallið á lyfjaprófinu.

Ákvörðun Astana um að draga sig úr keppni bindur enda á þátttöku Andreas Kloeden og Andrey Kashechkin sem höfðu staðið sig vel og voru í fimmta og áttunda sæti keppnarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×