Erlent

Kosovo mun ekki lýsa yfir sjálfstæði

Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna
Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna MYND/AFP

Leiðtogar Kosovo fullvissuðu Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi í Washington í dag um þeir hefðu ekki í hyggju að lýsa yfir sjálfstæði.

Skender Hyseni, talsmaður leiðtoga Kosovo, sagði fundinn staðfesta að Kosovo muni áfram vera í nánu samstarfi við bæði Bandaríkin og Sameinuðu þjóðirnar þegar kemur að því að leiða aðskilnaðinn frá Serbíu til lykta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×