Erlent

Conrad Black frjáls þar til dómur verður kveðinn upp

Black á leið í dómssal
Black á leið í dómssal MYND/AP

Fyrrverandi fjölmiðlakóngurinn Condrad Black þarf ekki að dúsa bak við lás og slá á meðan hann bíður eftir dómsuppkvaðningu, að því er dómari í Chicago hefur úrskurðað. Black, sem var fyrir viku síðan sakfelldur af kviðdómi fyrir fjársvik og hindrun á framgangi réttvísinnar, þarf að bíða fram í nóvember eftir dómsuppkvaðningu.

Saksóknari í málinu hafði krafist þess að Conrad myndi strax hefja afplánun en dómarinn hafnaði í dag þeirri beiðni. Hann verður þó að halda sig innan Chicago svæðisins eða í suðurhluta Flórída þar sem hann og eiginkona hans eiga hús. Black var ákærður fyrir þrettán brot og var fundinn sekur í fjórum þeirra. Meðal þess sem hann var sakaður um var að stela tæpum fjórum milljörðum íslenskra króna frá hluthöfum í Hollinger, sem var fjölmiðlaveldi Blacks, til að fjármagna einkaneyslu sína.

Black gæti átt yfir höfði sér allt að 35 ára fangelsi og þurft að greiða milljónir í bætur og sektir. Lögfræðingar Black hafa lýst því yfir að þeir muni áfrýja dómnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×