Erlent

52 létu lífið í sjálfsmorðsárás í Pakistan í dag

Ummerki eftir sjálfsmorðssprengjuárás í Islamabad í fyrradag
Ummerki eftir sjálfsmorðssprengjuárás í Islamabad í fyrradag MYND/AP

Þrjár sjálfsmorðssprengjuárásir urðu að minnsta kosti 52 að bana í Pakistan í dag. Er þetta mesta mannfall sem orðið hefur á einum degi síðan alda sjálfsmorðssprengjuárása hófst í kjölfar umsáturs stjórnvalda um Rauðu moskuna í Islamabad fyrr í þessum mánuði.

Alls hafa 150 manns látið lífið í sjálfsmorðssprengjuárásum eftir að umsátrinu lauk. Átökin við moskuna fyrr í mánuðinum brutust út eftir langvarandi deilur um íslömsku Sharia lögin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×