Erlent

82 létust í tveimur sprengingum í Kirkuk í Írak í morgun

Jónas Haraldsson skrifar

Að minnsta kosti 82 létu lífið í tveimur bílsprengjuárásum í borginni Kirkuk í Írak í morgun. Önnur sprakk á vinsælum markaði og hin á verslunarsvæði í borginni. Að minnsta kosti 136 særðust í árásunum. Kirkuk er norður af Bagdad en þar létust 22 í sjálfsmorðsárás þann 7. júlí síðastliðinn.

Árásirnar áttu sér stað með aðeins nokkurra mínútna millibili. Myndatökumaður Reuters, sem var á markaðnum, sagði að kviknað hefði í fjölda bíla. Þá hefðu farþegar strætisvagns orðið innlyksa og síðan brunnið til bana. Þar var um sjálfsmorðsárás að ræða. Í hinni árásinni var um að ræða bíl sem lagt var við fjölfarna verslunargötu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×