Erlent

Haneef haldið um sinn

Yfirvöld í Ástralíu ákváðu í nótt að halda indverskum lækni, sem hafði verið tekinn í gæsluvarðhald vegna tengsla við sprengjutilræðin í Glasgow og Lundúnum, enn lengur í gæsluvarðhaldi. Mohamed Haneef var tólf daga í haldi lögreglu án þess að vera ákærður.

Hann var síðan ákærður en dómari úrkurðaði að honum ætti að sleppa gegn tryggingu. Innflytjendayfirvöld gripu þá til síns ráðs og beittu sínu valdi til þess að halda honum lengur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×