Erlent

14 láta lífið í sprengjuárás í Pakistan

Átök halda áfram að magnast í norðvesturhluta Pakistan en 14 manns létu lífið í fyrirsátri uppreisnarmanna í nótt. 38 hafa því látið lífið í árásum á svæðinu á síðasta sólarhring. Þær virðast vera hluti af hefndaraðgerðum vegna áhlaups hersins á Rauðu moskuna í síðastliðinni viku.

Heittrúaðir múslimar um allt Pakistan, og sérstaklega í norðvesturhluta landsins, mótmæltu aðgerðunum og kröfðust og hótuðu hefndum. Í gær létust 24 í sjálfsmorðsárás á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×