Erlent

Hóta hefndum

Guðjón Helgason skrifar

Bretar segjast hafa verið í fullum rétti með að aðla rithöfundinum Salman Rushdie á dögunum fyrir framlag hans til bókmennta. Múslimar víða um heim hafa tekið því sem móðgun og hótar næstráðandi hjá al Kaída hefndum.

Elísabet Englandsdrottning veitti Rushdie riddaratign fyrir tæpum mánuði og gagnrýnu Íranar og Pakistanar það harkalega. Rushdie vakti mikla reiði meðal múslima seint á níunda áratug síðustu aldar þegar bók hans Söngvar Satans kom út. Þar fjallaði höfundur um baráttu góðs og ills og sameinaði skáldskap, heimspeki og farsa. Múslimar sögðu Rushdie hafa framið guðlast með lýsingu sinni á spámanninum Múhameð.

Kohmeini, þá æðstiklerkur Írana, dæmdi Rushdie til dauða og fór hann þá í felur. Ekki kom hann aftur fram fyrr en 1998 þegar íranska ríkisstjórnin sagði dóminn fallinn úr gildi. Nú hafa al Kaída hryðjuverkasamtökin bæst í hópi Írana og Pakistan og segja riddaratign Rushdies móðgun við múslima.

Í gær var á vefsíðu herskárra birt hljóðupptaka sem sögð er af Ayman al-Zawahiri, næstráðandi hjá samtökunum. Hann segir Elísabetu Englandsdrottningu hafa niðurlægt Múhameð spámann með því að veita riddaratignina. Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, hljóti að hafa lagt það til og það því síðustu skilaboð hans til múslima áður en hann tekur að sér að semja um frið fyrir botni Miðjarðarhafs sem sérlegur sendifulltrúi fjórveldanna svokölluðu. Al-Zawahiri sagði skilaboð drottningar og Blairs meðtekin og viðbragða al-Kaída að vænta. Er það túlkað sem hótun um árás.

Bretast hins vegar hafa aðlað Rushdie fyrir framlag hans til bókmennta - ekki hafi verið ætlunin að móðga neinn. Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, sagði á blaðamannafundi í dag nú sem fyrr yrðu varnir gegn hryðjuverkum miklar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×