Erlent

Bandaríkin senda þriðja flugmóðurskipið til Persaflóa

Flugmóðurskipið Enterprise á siglingu
Flugmóðurskipið Enterprise á siglingu MYND/AP
Bandaríkin hafa sent þriðja flugmóðurskipið, Enterprise, til Persaflóans, á svæði nálægt írönsku hafsvæði. Sjóherinn sagði frá þessu í tilkynningu í morgun. „Enterprise er mótvægi við þær truflandi aðgerðir sem sum lönd á svæðinu standa fyrir. Einnig styður það við bakið á hermönnum okkar í Írak og Afganistan." sagði í tilkynningunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×