Viðskipti erlent

KKR skráð á markað

Fjárfestingasjóðurinn KKR ætlar að feta í fótspor bandaríska félagsins Blackstone og skrá félagið á markað vestanhafs í kjölfar útboðs með bréf í félaginu. Fjárfestingasjóðir hafa í auknum mæli horft til þess sækja sér aukið á almennum markaði til að auka fjárfestingagetu sína.

Efasemdir hafa þrátt fyrir þetta verið um áframhaldandi vöxt fjárfestingafélaga vegna yfirvofandi skattahækkana á fyrirtæki í þessum geira í Bandaríkjunum.

Skráning Blackstone á markað þótti velheppnað fyrir hálfum mánuði enda útboðsgengi bréfa í félaginu í hærri mörkum. Gengi bréfa í félaginu hefur dalað nokkuð frá skráningu og situr nú kirfilega rétt undir útboðsgengi.

Með skráningu KKR á markað í kjölfar útboðs er stefnt að því að safna 1,25 milljörðum dala, jafnvirði 77,7 milljarða íslenskra króna.  

Samkvæmt heimildum Bloomberg nema fyrirtækjakaup KKR síðastliðna 12 mánuði 200 milljörðum dala, jafnvirði 12.426 milljörðum íslenskra króna. Þar á meðal eru einhverjar stærstu yfirtökur í heimi






Fleiri fréttir

Sjá meira


×