Sport

Meistarinn úr leik

Vaidisova mætir Önu Ivanovic eða Nadiu Petrovu í fjórðungsúrslitum
Vaidisova mætir Önu Ivanovic eða Nadiu Petrovu í fjórðungsúrslitum NordicPhotos/GettyImages
Sigurgöngu Amelie Mauresmo á Wimbledon-mótinu lauk í dag þegar hún tapaði 7-6 (8-4), 4-6 og 6-1 fyrir hinni tékknesku Nicole Vaidisovu í fjórðu umferðinni. Leiknum var frestað fjórum sinnum vegna rigninga en hinn 18 ára Vaidisova vann að lokum sannfærandi sigur í síðasta settinu og tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitunum á mótinu. Þetta var þriðji sigur Vaidisovu á Mauresmo í röð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×