Erlent

Þriggja manna leitað

Guðjón Helgason skrifar

Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að þremur mönnum vegna tveggja bílsprengja sem fundust í miðborg Lundúna í gær. Talið er að lögregla viti hverjir þeir séu og að mynd hafi náðst af einum þeirra þar sem hann lagði bíl með sprengju innanborðs nærri næturklúbbi í fyrrinótt.

Það var í fyrrinótt sem fyrri sprengjan fannst í bíl nærri vinsælum næturklúbb og sú síðari fannst nokkrum klukkustundum síðar í bíl í bílageymslu undir Hyde garði skammt frá klúbbnum.

Fréttastofa bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC greinir frá því að breska lögreglan hafi hrundið af stað umfangsmikilli leit. Haft er eftir heimildarmönnum úr bandaríska stjórnkerfinu að breska lögregla viti hverjir mennirnir séu - þeir búi í Birmingham og næsta nágrenni. Breskir miðlar fara þó af meiri varfærni í málið er leggja ekki fullan trúnað í fréttir NBC.

Lundúnalögreglan hefur varið síðasta sólahring í að skoða upptökur úr öryggismyndavélum á svæðinu. Breskir og bandarískir miðlar hafa eftir heimildarmönnum að skýr mynd hafi fundist á upptökum af einum mannanna - þeim sem lagði silfurgráum Mercedez Benz, hlöðnum bensíni, gashylkjum og nöglum, nærri næturklúbbnum Tiger Tiger. Samskonar búnaður fannst í seinni bílnum, bláum Benz. Ábending um hann barst þegar megna bensínlykt tók að leggja frá honum. Bílinn hafði verið dreginn í bílageymsluna þar sem honum hafði verið lagt ólöglega skammt frá.

Öryggissérfræðingar segja ekki hægt að útiloka að málið tengist al Kaída hryðjuverkasamtökunum en það sé vani liðsmanna þeirra að koma fyrir tveimur sprengjum á afmörkuðu svæði.

Eftirlit hefur verið hert í Lundúnum og öryggisgæsla á stórviðburðum hert til muna. Í borginni í dag verður árleg gleðiganga samkynhneigðra haldin og á morgun verða minningartónleikar um Díönu prinsessu á Wembley leikvanginum. Þess fyrir utan beinast augu margra íþróttaunnenda að Wimbledon tennismótinu sem stendur nú sem hæst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×