Erlent

Skógareldar í Grikklandi

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Skógareldar sem geisa í Grikklandi hafa orðið að minnsta kosti tveimur að bana og eyðilagt mörg heimili. Þetta er aðeins nokkrum dögum eftir að gífurleg hitabylgja varð til þess að minnsta kosti níu manns létust úr hitaslagi.

Mennirnir tveir, 36 og 42 ára, króuðust inni og létust eftir að hafa yfirgefið bíl sinn í skóginum nálægt eldunum. Maður sem var með þeim en beið í bílnum slapp ómeiddur. Skógareldarnir hófust í gær og lýst hefur verið yfir neyðarástandi í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×