Erlent

Tveir láta lífið í sjálfsmorðsárás í Kabúl

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Tveir vestrænir öryggisverðir létu lífið í dag í höfuðborg Afghanistan, Kabúl. Mennirnir létust þegar ráðist var að bílalest þeirra með sjálfmorðssprengjubíl. Talíbanar segjast bera ábyrgð á árásinni.

Innanríkisráðuneytið segir að tveir menn hafi látið lífið og átta slasast. Ekki kemur fram hvað mennirnir heita eða hvaðan þeir eru, lögreglan sagði þó að þeir væru vestrænir. Kabúl hefur verið vettvangur fjölda sjálfsmorðssprengja talíbana á þessu ári, meðal annars létust 20 lögreglumenn í sprengingu 17. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×