Erlent

Búist við frekari rigningum í Bretlandi

Búist er við enn frekari rigningum í Bretlandi næstu daga. Líklegt er að rigningin eigi eftir að valda enn frekari vandræðum og þá sérstaklega á þeim svæðum sem urðu hvað verst úti í flóðunum síðustu daga. Strax í dag er búist við frekari rigningu og einnig um helgina.

Aldrei hefur rignt jafn mikið í júní mánuði í Bretlandi og nú. Fólki á svæðum sem urðu verst úti hefur verið ráðlagt að halda sig heiman frá enn um sinn. Fjórir létust í flóðunum fyrr í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×