Erlent

Sjö létust í sprengingu á hóteli í Bagdad

Sjö létust og átta særðust þegar sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp í anddyri hótels í miðborg Bagdad í morgun. Hótelið sækja margir útlendingar og írakskir embættismenn. Það er ekki langt frá Græna svæðinu og var talið eitt það öruggasta í allri borginni.

Þar stendur einnig yfir fundur leiðtoga ýmissa ættbálka súnní múslima úr vesturhluta Anbar héraðsins. Mikil meirihluti þeirra hefur gengið Bandaríkjunum á hönd og hafið baráttu gegn uppreisnarmönnum súnní múslima sem styðja al-Kaída.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×