Fótbolti

Thierry Henry semur við Barcelona

Franski landsliðsmaðurinn Thierry Henry hefur samið við spænska stórveldið Barcelona til fjögurra ára. Barcelona greiðir 16 milljónir punda fyrir framherjann. Útvarpsstöðin Cadena Ser og dagblaðið El Pais greindu frá þessu.

Þar með lýkur átta ára ferli Henry hjá Arsenal. Talað er um að Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hafi reynt allt hvað hann gat til að fá Henry til að halda áfram með Arsenal, en án árangurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×