Fótbolti

Ramos hefur áhyggjur fyrir bikarúrslitaleikinn

Juande Ramos, þjálfari Sevilla
Juande Ramos, þjálfari Sevilla NordicPhotos/GettyImages

Juande Ramos, þjálfari Sevilla á Spáni, segist hafa áhyggjur af mikilli bjartsýni í herbúðum liðsins fyrir úrslitaleikinn í spænska konungsbikarnum á Santiago Bernabeu á laugardagskvöldið. Andstæðingar Sevilla verða meistarabanarnir í Getafe og verður leikurinn sýndur beint á Sýn.

Sevilla getur með sigri tryggt sér tvo bikara í hús á leiktíðinni eftir að það varð um daginn fyrsta liðið í langan tíma til að afreka það að verja titil sinn í Evrópukeppni félagsliða. Sevilla er fyrirfram talið sigurstranglegra í úrslitaleiknum, en þó er Getafe sýnd veiði en ekki gefin eins og komið hefur á daginn í keppninni. Getafe sló þannig út bæði Valencia og Osasuna - og setti á svið einn dramatískasta leik í sögu keppninnar með 4-0 sigri á Barcelona í síðari leik liðanna á heimavelli eftir að hafa tapað fyrri leiknum 5-2 í Katalóníu.

Sevilla hefur þrisvar unnið sigur í Konungsbikarnum en sá síðasti kom fyrir 60 árum síðan. Sevilla hafnaði í þriðja sæti í deildarkeppninni í ár sem er besti árangur liðsins í deildinni síðan árið 1970. Smálið Getafe hefur hinsvegar aldrei unnið titil í sögu félagsins og er að leika til úrslita um bikar í fyrsta sinn á laugardaginn. Liðið endaði í níunda sæti í spænsku deildinni annað árið í röð en átti frábæran árangur á heimavelli þar sem það tapaði ekki leik gegn sex efstu liðunum í deildinni í allan vetur.

"Ég hef áhyggjur af andrúmsloftinu í kring um félagið í augnablikinu og menn verða að vera með rétta hugarfarið þegar þeir spila úrslitaleik. Það er eins og allir séu að undirbúa sig fyrir fagnaðarlæti í Madrid um helgina og enginn virðist hafa svo mikið sem hugsað til þess að við getum tapað þessum leik. Getafe er mjög hungrað í að vinna sinn fyrsta titil í sögu félagsins og verður því erfið hindrun. Liðið er með frábæran árangur gegn stórliðum í vetur og nýtir sér alltaf styrk sinn gegn hvaða andstæðingi sem er," sagði Ramos.

Bernd Schuster, þjálfari Getafe, hefur verið orðaður sterklega við Real Madrid á næstu leiktíð og því gæti þetta orðið síðasti leikur hans með liðið. Miðvörðurinn David Belenguer er klár í slaginn og hefur sent Sevilla skilaboð fyrir úrslitaleikinn. "Allir sem vita eitthvað um fótbolta vita að Getafe mun ekki leggjast í jörðina og gráta," sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×