Erlent

13 létust og 35 særðust í sprengingu í Írak

13 létu lífið og að minnsta kosti 35 særðust þegar sjálfsmorðssprengjumaður keyrði vörubíl hlaðinn sprengiefni á bæjarstjórnarbyggingu í bæ í norðurhluta Írak í morgun. Á meðal látinna voru konur og börn. Fjölmörg hús eyðilögðust í sprengingunni.

Lögreglan í Kirkuk, sem er næsta borg við Sulaiman Bek, bæinn sem árásin átti sér stað í, er á staðnum að aðstoða við að bjarga þeim sem enn liggja undir rústum húsa á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×