Körfubolti

Reggie Theus tekur við Sacramento Kings

Reggie Theus skrifar undir þriggja ára samning við Kings í dag
Reggie Theus skrifar undir þriggja ára samning við Kings í dag NordicPhotos/GettyImages
NBA lið Sacramento Kings hefur ráðið fyrrum leikmann liðsins Reggie Theus sem næsta þjálfara félagsins. Theus spilaði með Kings þegar liðið var í Kansas City á sínum tíma en er nú að taka við þjálfun NBA liðs í fyrsta sinn á ferlinum. Hann var áður þjálfari New Mexico State í Háskólaboltanum og leysir Eric Musselman af hólmi eftir að hann vann aðeins 33 leiki með Sacramento í vetur.
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×