Fótbolti

Capello óviss með framtíð sína

Aron Örn Þórarinsson skrifar
NordicPhotos/GettyImages

Fabio Capello veit ekki ennþá hvort að hann verði áfram hjá Real Madrid á næsta tímabili, þrátt fyrri að hafa unnið deildina með liðinu í gær. Það var í fyrsta sinn sem sem stórveldið frá Madrid vinnur deildina í fjögur ár.

„Það veltur allt á því hvað forseti Real Madrid ákveður að gera. Ég hef oft talað við hann og sagt honum að ég vilji vera áfram. Ég sagði við hann að ef hann vill mig ekki áfram þarf hann bara að segja það. Hann sagði mér að ákvörðun yrði tekin í vikunni," sagði Capello.

Madrid kom í veg fyrir að Barcelona myndu vinna deildina þrjú ár í röð, með að sigra Mallorca 3-1 í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×