Erlent

Ráðist á moskur súnnía í Bagdad

Ráðist var á þrjár moskur súnnía í Bagdad í nótt og þær brenndar verulega. Ekki er vitað hverjir voru þar að verki en grunur leikur á að sjía múslimar komi þar að. Árásirnar á súnnía moskurnar gerast aðeins degi eftir að bænaturnar al-Askirya moskunnar voru sprengdir upp.

Síðast þegar ráðist var á þá mosku, í febrúar árið 2006, varð það upphafið að miklum átökum milli sjía og súnnía. Þúsundir hafa látið lífið í þeim átökum sem virðast nú hafa stigmagnast á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×