Erlent

Hamas og Fatah ná samkomulagi um vopnahlé

Jónas Haraldsson skrifar
Liðsmenn Fatah sjást hér ræna starfsmanni sjónvarpsstöðvar sem Hamas sér um.
Liðsmenn Fatah sjást hér ræna starfsmanni sjónvarpsstöðvar sem Hamas sér um. MYND/AFP

Stríðandi fylkingar á Gaza svæðinu hafa náð samkomulagi um vopnahlé en 80 manns hafa látið lífið í átökum þar undanfarna daga.

Leiðtogar beggja fylkinginga gáfu út sameiginlega yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem þeir báðu félagsmenn í samtökum sínum að leggja niður vopn sín. Vopnaði armur Hamas samtakanna segist þó engin fyrirmæli um slíkt hafa fengið og því hefur hann barist áfram.

Hamas og Fatah náðu samkomulagi um níu atriði sem Hamas hafði sett sem skilyrði fyrir vopnahléi. Þeirra á meðal var krafa um að skipaður yrði ráðherra sem yrði yfir öllum öryggissveitum Palestínu.

Að minnsta kosti 17 manns létu lífið í átökum á Gaza svæðinu í gær. Vitni að bardögunum segja að svo virðist sem Hamas sé að síga fram úr í baráttunni um völdin á svæðinu. Átökin hófust á laugardaginn síðastliðinn og áköll um vopnahlé hafa ítrekað verið virt að vettugi.

Sameinuðu þjóðirnar eru að íhuga að senda friðargæsluliða á svæðið. Ban Ki-moon, aðalritari þeirra sagði það í gær. Hann sagði að bæði Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hefðu haft orð á því við sig. Hingað til hafa Ísraelar ekki viljað friðargæsluliða á Gaza svæðinu.

Hamas samtökin sögðu síðan í morgun að þau myndu aldrei samþykkja alþjóðlegt friðargæslulið við landamæri Gaza og Egyptalands. Litið yrði á slíkt lið sem óvinveitt hersetulið, án tillits til þjóðernis þess.

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði á þriðjudaginn að það væri einn af möguleikunum í stöðunni og að hann þyrfti að skoða sem aðferð til þess að draga úr síauknum áhrifum Hamas á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×