Erlent

Fékk hjartaáfall eftir fæðingu sexbura

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
Masche hjónin voru himinlifandi við fæðingu sexburanna.
Masche hjónin voru himinlifandi við fæðingu sexburanna. MYND/AP

Móðir sexbura sem fæddust á mánudag í Arisona í Bandaríkjunum fékk hjartaáfall eftir fæðinguna en er nú á batavegi. Sexburarnir voru teknir með keisaraskurði tíu vikum fyrir tímann og vógu frá tæpum fjórum mörkum til rúmlega fimm marka. Fimm þeirra fá hjálp við öndun en allir eru í hitakassa, þar sem þeir eru ekki enn úr hættu.

Þetta eru fyrstu börn foreldranna, en konan hafði í tvígang misst fóstur. Í þetta sinn notuðust hjónin við tæknifrjóvgun og hormónalyf með þessum árangri. Þetta var önnur sexburafæðingin í Bandaríkjunum á tíu klukkutímum, en fyrri fjölburarnir fæddust í Minnesota.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×