Erlent

Bandaríkjamenn drepa afganska lögreglumenn

Bandarískir hermenn í Afganistan skutu óvart sjö afganska lögreglumenn til bana í nótt. Bandaríski herinn var kallaður til aðstoðar eftir að lögreglumennirnir lentu í átökum við vígamenn talibana.

Herinn bað þá um loftárás á svæðið og létu lögreglumennirnir lífið í árásinni. Alls hafa þrettán afganskir lögreglumenn látið lífið í átökum við vígamenn talibana sem hófust í gærdag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×