Fótbolti

Capello kennir sér um brottför Beckhams

MYND/AFP
Fabio Capello, framkvæmdastjóri Real Madrid, kennir sjálfum sér um brottför Davids Beckham frá félaginu. Hann tók Beckham úr liðinu og stuttu seinna skrifaði Beckham undir samning hjá LA Galaxy.

Beckham hefur spilað gríðarlega stórt hlutverk í endurreisn Real nú á seinni hluta leiktíðar. Forseti félagsins sem og Capello hafa báðir sagt í fjölmiðlum að þeir myndu fagna því ef Beckham yrði áfram hjá félaginu. Alexei Lalas, formaður LA Galaxy hefur ekki tekið vel í þær sögur og segir að útilokað sé að Beckham verði áfram hjá Real. Umboðsmaður hans tók undir það í morgun og sagði engar líkur á að af Bandaríkjaför Beckhams yrði ekki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×