Sport

Nadal: Ég er í mínu besta formi til þessa

Rafael Nadal er konungur leirvallanna
Rafael Nadal er konungur leirvallanna NordicPhotos/GettyImages

Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal vann í dag sinn þriðja titil í röð á opna franska meistaramótinu og komst þar með í úrvalshóp manna í tennissögunni. Hann segist hafa spilað sinn besta tennis á ferlinum á mótinu.

"Ég held að ég hafi spilað minn besta tennis til þessa á Ronald Garros. Ég er orðinn betri alhliðaleikmaður. Ég er betri við netið, grimmari og hef bætt bakhöndina mína nokkuð. Mér finnst ég betri í ár en ég var í fyrra," sagði Nadal sem vann sinn 21. leik í röð á opna franska og hefur aldrei tapað leik þar.

"Það er sannkallaður draumur að vinna svona risamót þrjú ár í röð og svona augnablik var mér ekki efst í huga þegar ég byrjaði á tímabilinu - því ég var ekki að spila vel framan af tímabili. Þetta er klárlega mitt besta tímabil á leirvöllum," sagði sá spænski.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×