Sport

Henin og Ivanovic í úrslit opna franska

Ana Ivanovic hefur verið í fantaformi á Roland Garros
Ana Ivanovic hefur verið í fantaformi á Roland Garros AFP
Justine Henin lék frábæran tennis í dag þegar hún tryggði sér sæti í úrslitaleik opna franska meistaramótsins með sigri á Jelenu Jankovic 6-2 og 6-2. Þar mætir hún serbnesku stúlkunni Ana Ivanovic sem tryggði sér sæti í úrslitum á stórmóti í fyrsta sinn með því að leggja Mariu Sharapovu 6-2 og 6-1. Ivanovic er í 6. sæti styrkleikalistans og er aðeins 19 ára gömul, en Henin sigraði á opna franska í fyrra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×